10 ástæður fyrir því að allir viti bornir menn ættu að gerast fanatískir hafnarboltaaðdáendur

Öðru hverju—en þó ekki oft—kem ég sjálfum mér á óvart. Eftirminnilegt dæmi um það er þegar ég varð heltekinn af bandarískri sjónvarpsþáttaröð um hóp ungmenna sem bjó saman sumarlangt í lítilli og heldur óhrörlegri íbúð í litlum bæ í New Jersey í Bandaríkjunum. Þátturinn var nefndur eftir bænum—Jersey Shore. Það er útbreidd skoðun að þessi […]

Hvað getum við gert?

Fréttir af flóttamönnunum frá Sýrlandi hafa snert streng í hjarta margra og hræðilegar myndirnar sem hafa birst af látnum börnum á flótta undan stríðsátökum hafa vart látið nokkurn mann ósnortinn. Íslendingar hafa gert skammarlega lítið í gegnum árin til þess að leggja sitt lóð á vogaskálarnar til þess að aðstoða flóttamenn.   Frá því Ísland […]

Kombakk plötunnar

Á fyrri árshelmingi 2015 seldust rúmlega fimm milljónir platna í Bandaríkjunum. Það þarf kannski ekki að koma á óvart í ljósi þess að blómaskeiði plötunnar lauk fyrir um 25 árum, en fimm milljónir platna er ekki sérstaklega mikið – í samanburði seldust um tíu sinnum fleiri geisladiskar auk þess sem álíka mörgum albúmum var niðurhalað. […]

What’s in it for me?

Hinar mjög svo skiljanlegu áhyggjur sem íslensk útgerðarfyrirtæki hafa af áhrifum viðskiptaþvingana Rússa hafa tekið á sig furðulega mynd. Ekki er hægt að álasa þeim sem eiga í góðu viðskiptasambandi við Rússland að þeir séu uggandi yfir stöðunni. Það er meira að segja skiljanlegt að þeir freistist til þess að þróa með sér þá skoðun […]

Kúkur í lauginni

Í hverri viku birtast fréttir um útskitnar náttúruperlur þar sem hlandblautur klósettpappír fýkur til í grasinu, endalausar raðir í Leifsstöð og illa útbúna ferðamenn sem hætta sér út í miskunnlausa náttúruna. Allt kemur þetta hinum almenna Íslendingi afskaplega mikið á óvart, en af hverju? 2015 er þriðja, eða jafnvel fjórða, sumarið þar ferðamannaaukning er talsvert […]

Drusla þakkar fyrir sig

Að ganga með vinum niður Skólavörðustíginn sem var fullur af fólki í baráttuhug er einhver fallegsta stund sem ég hef upplifað í íslensku samfélagi. Þetta voru ekki mótmæli þar sem þras um núverandi ástand var yfirskriftin. Nei þetta var bylting, bylting á hugarfari og bylting á samfélagi. Saman í göngunni voru börn, konur og menn, […]

Víst hefði RÚV getað gert betur með HM kvenna

Þegar ég hamra þessi orð með sjónvarpið fyrir framan mig og einn kaldan á kantinum er úrslitaleikur í HM kvenna að hefjast. Þetta er 12 leikur sem RÚV sýnir á mótinu, af þeim 52 sem þar fóru fram. Þegar karlamótið fór fram (Innskot: Vúhú mark fyrir Bandaríkin) sýndi RÚV langflesta leikina (nöjts, 2:0) og lét af […]

Til hamingju með daginn

Kæru landsmenn, til hamingju með daginn. Við getum stolt haldið upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, verandi sú þjóð heims sem stendur sig hvað best þegar kemur að jafnrétti kynjanna og kvenréttindum. Allt lagaumhverfi hér á landi tryggir jöfn réttindi karla og kvenna og hefur svo verið um áraraðir. Opinberar tölur og tölfræði sýna […]

Hækkun lífeyris á að vera sjálfsögð til jafns við aðrar

Í allri umræðu um bætt kjör launafólks hefur Öryrkjabandalagið reynt að knýja fram breytingar hvað varðar örorkulífeyri. Talsmenn ellilífeyrisþega eru á sama máli og ASÍ líka þegar kemur að atvinnuleysisbótum. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa að þeir sem hafa, vegna veikinda eða slyss, misst getuna til að taka þátt í atvinnulífinu með sama hætti […]

Hefur Akureyrarbær heyrt um evrópska efnahagssvæðið?

Seinustu sumur hafa Strætisvagnar Akureyrar (SVA) skorið hressilega niður þjónustu sína yfir sumartímann oftast með þeirri afsökun að ekki hafi fengist fólk til sumarafleysinga. Allt meiraprófsliðið sé að keyra túrista og enginn vill keyra strætó. Í ár á þannig að hætta akstri í heilan mánuð. Ef maður leitar að „Sumarafleysingar SVA“ finnur maður engar síður […]

Ísland best í heimi!

Í dag þarf ég að skrifa pistil og því miður er bara eitt umræðuefni sem kemur til greina, verkföll. Hver vill eiginlega að skrifa um það. Komm on! Það er nýkomið sumar og veturinn var hræðilegur. Getum við ekki bara lokað augunum, troðið puttunum inn í eyrun og vonað að allt reddist. Hefur það ekki […]

Frú forseti

Obama mun láta af forsetaembætti á næsta ári eftir frekar tilkomulitla átta ára valdatíð. Miklar væntingar voru gerðar til hans í upphafi valdatímabilsins sem honum hefur ekki tekist að standa undir. Þrátt fyrir þennan dóm virðist honum vera að takast nú rétt undir blálok forsetatíðar sinnar að skilja eftir sig ógleymanlega arfleifð, sem alla forseta […]

Hvað stýrir stuðningi við verkfall?

Í læknaverkfallinu í vetur var yfirgnæfandi stuðningur í samfélaginu við kröfur og verkfallsaðgerðir lækna. Það sama verður ekki sagt um núverandi verkfallsaðgerðir starfsfólks í heilbrigðisþjónustu. Hvað veldur? Sú harka sem birtist okkur í fréttum um helgina af verkfallsaðgerðum geislafræðinga gerði lítið til að efla samúðina með því verkfalli. Reyndar varð umræðan svo harkaleg að formaður […]

Hugleiðing um tjáningarfrelsi

Á þriðju hæð í ferköntuðum steypukumbalda á Ruschestraße í austurhluta Berlínar stendur skrifstofa. Skrifstofan er nokkuð stór; þar er mikið skrifborð, fundarborð og lítil setustofa, en að öðru leyti lætur hún lítið yfir sér. Það er upplitað parkett á gólfinu, utan blettinn umhverfis skrifborðið við fjarendann sem er hulinn rauðu gólfteppi. Húsgögnin eru íburðarlítil, úr […]

Foreldrasamtök dreifa áfengisauglýsingum

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum birtu nýlega á fésbókarsíðu sinni myndband frá sænsku áfengisversluninni Systembolaget. Myndbandið sýnir vondan amerískan markaðsfræðing labba um verslunina og benda á leiðir til að auka hagnað. Í lokin hristir vinalega forstöðukonan hausinn og segir “Nei, svona gerum við þetta ekki hér.” Þetta er yfirgengilega klénn PR-áróður. Sérstaklega er pínlegt að menn skyldu nota […]

Deildin „okkar“

Nú fer hið íslenska fótboltasumar að byrja með pompi og prakt. Því fylgir venju samkvæmt spár um gengi liðanna, leikmannahópar eru krufnir til mergjar, veikleikar og styrkleikar kortlagðir af helstu sparkspekingum og hinn gallharði stuðningsmaður bíður í eftirvæntingu með misraunhæfar vonir um gegni síns liðs. En umfjöllun um íslenska knattspyrnu fylgir gjarnan umfjöllun um fjölda […]

Stríðið við lífsviljann

Það er stríð í Miðausturlöndum. UNHCR metur að 10 milljónir manna séu á flótta undan átökunum í Sýrlandi. Sumir hafa flúið innan Sýrlands. Sumir hafa reynt að flýja til nágrannaríkjanna. Sumir reyna að flýja til Evrópu. Líkt og Hans Rosling bendir á í nýlegu myndbandi er sú kvöð lögð á flugfélög að þau gangi úr […]

„Ég á afmæli í dag“—gleðilegt sumar!

Á Íslandi hefur löngum þótt gott ráð að klæða sig eftir veðri. Víðast hvar annars staðar dugir að klæða sig eftir dagatalinu. Á sumardaginn fyrsta—er sannarlega ekki alltaf hægt að treysta á að það sé komin sól og blíða. Þvert á móti er allt eins víst að hinn svokallaði sumardagur fyrsti eigi jafnmikið skylt við […]

Orðum fylgir ábyrgð

Á undanförnum vikum hefur nokkur umræða átt sér stað í fjölmiðlum um arkitektúr og skipulagsmál, að mörgu leyti vegna ummæla forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugsonar, um ýmis mál sem eiga rætur að rekja innan þessara greina. Stjórnir þriggja fagfélaga sem starfa á þessum sviðum sendu þar af leiðandi út sameiginlega yfirlýsingu í síðustu viku til að […]

Kæra valdastétt Norður-Kóreu

Kæra valdastétt Norður-Kóreu. Ég er með tilboð handa ykkur. Hættið þessu. Þessu sem þið eruð að gera. Það er ykkur fyrir bestu. Ég er ætla samt að vera hreinskilinn með það að velferð ykkar er mér ekkert sérstaklega ofarlega í huga. Ég er ekki að koma með ráð vegna þess að ég vilji ykkur vel. […]