Tilhugalíf forseta Íslands heldur áfram og gerist nú æ fjölmiðlavænna. Sagt er frá því í DV í gær að vinkona forsetans hafi komið með leynd með flugi til Íslands og yfirgefið flugvélina eftir óhefðbundinni leið til þess að komast hjá athygli. Síðan segir frá því að þau forsetinn hafi mælt sér mót við ljósmyndara DV á Leirubökkum svo hann gæti fylgst með útreiðartúr þeirra. Þetta er örugglega tilfinningalega svigrúmið sem forsetinn bað fjölmiðla að veita tilhugalífi sínu (sjá síðasta tölublað Deiglunnar). Söguna af kvöldreiðinni þekkja flestir og óþarft að hafa um hana nokkur orð, nema hvað hæstvirtum forseta er óskað bata.
- Ósjálfbjarga fólk í þróuðu samfélagi - 26. janúar 2021
- Lýðræðið hrindir atlögunni - 9. janúar 2021
- Fögnuður tímans - 1. janúar 2021