„Að hika er sama og tapa“

ÓlgusjórForsætisráðherra, skipstjóri þjóðarskútunnar, ritaði Kjaradómi bréf og mótmælti launhækkunum alþingismanna. Nú virðist ráðherra hafa fengið bréfið endursent, óopnað. En heyr heyr, forsætisráðherra hefur skipað nefnd í málið.

ólgusjórForsætisráðherra, skipstjóri þjóðarskútunnar, ritaði Kjaradómi bréf og mótmælti launhækkunum alþingismanna. Nú virðist ráðherra hafa fengið bréfið endursent, óopnað. En heyr heyr, forsætisráðherra hefur skipað nefnd í málið.

Niðurstaða kjaradóms um launahækkanir æðstu ráðamanna var eins og köld vatnsgusa framan í atvinnulífið og ekki til þess fallin að varðveita dýrmætan stöðugleika þjóðarskútunnar, því vel blæs fyrir. Stutt er síðan að Alþingismenn höfðu sjálftöku í stórauknum lífeyrisréttindum og launahækkanir núna, umfram launahækkanir á almennum vinnumarkaði, koma á mjög viðkvæmum tímapunkti og eru líklegar til þess að rífa seglin.

Þegar svo ber undir treystir þjóðin því að skipstjóri skútunnar taki í stýrið og leiðrétti kúrsinn. En forsætisráðherra hefur greinilega talið að áhrif hans væru mest metin í bréfaskriftum – mótmælum á pappír. Þegar bréf hans er svo endursent, óopnað, lýsir ráðherra yfir vonbrigðum sínum og segist hafa vonað eftir “ábyrgri afstöðu” í málinu. En ráðherra lætur ekki deigan síga heldur skipar nefnd í málið – alveg harðákveðinn. En stóra nefndin, Alþingi, situr heima og bíður eftir stærstu áramótabombunni.

Ef ráðherra finnur ekki taktinn á svona stundum koma áleitnar spurningar upp í hugann og samanburður við forvera hans sem þekkti áhöfnina betur. Þá rifjast einnig upp orð Steingríms Thorsteinssonar forðum, „Að hika er sama og tapa“.

Latest posts by Davíð Guðjónsson (see all)